Skjalasafn fyrir maí, 2005

Duglegust!

30. maí, 2005

Jæja þar kom að því :) Saga Guðrún stóð upp alveg sjálf í rúminu sínu áðan. Hún hefur semsagt staðið upp nokkrum sinnum ef við setjum hendurnar á brúnina en í þetta skiptið var engin aðstoð og hún þvílíkt ánægð með sig. Stóð svo bara eins og klettur þar til pabbi hennar kom til að fá að sjá afrekskonuna! Af einstakri tillitssemi við mig, hina vinnandi konu beið hún alveg til hálf sjö með þetta afrek svo ég myndi örugglega ekki missa af því :)
Annars gekk bara vel hjá þeim feðginunum í dag … en það var lítil glöð stelpa hér þegar ég kom heim og voða fegin að fá brjóstið sitt!

Um helgina fórum við á októberbumbuhitting og það var rosa gaman :) Aldrei þessu vant var Saga bara til í að leika við krakkana og tók af þeim dót og svona og var ekkert í því að kvarta um leið eins og venjulega! Það eru myndir af hittingnum í albúmi vikunnar :) Síðan var sund á sunnudaginn og hún er nú meiri nöldrarinn þetta skott! Hún nöldrar yfir þessu öllu saman án þess að það sé nokkuð að … ætli það sé ekki rétt sem afi Addi segir að það vanti fiskagenið í þetta barn! Eftir sund fórum við til Maju og Brynjars og náðum í nýjan vagn fyrir dömuna sem var þar í geymslu og eftir hádegi eyddum við mæðgurnar deginum hjá Magnúsi & Guðrúnu þar sem Saga var úti meira og minna allan daginn. Hún sat fyrst á pallinum í sólinni og fór svo í göngutúr með Ólöfu og vinkonum hennar.

Hún er farin að fá pínu kjöt að borða núna og finnst það ekki lítið gott! Hún borðaði pínu kótilettu í gær með kartöflu hjá afa sínum og svo fékk hún mauk með kartöflu og brokkólí í kvöld og það heyrðist meira að segja “namm” á meðan það rann ljúflega niður! Kannski þarf hún bara meiri mat til að fara að þyngjast þetta fis … amk er hún að taa við sér í matarmálunum :)

Afrekskona

27. maí, 2005

Það er ekki hægt að segja annað en að það sé bara allt að gerast hjá Sögu Guðrúnu þessa dagana! Hún er komin með sex tennur, fjórar uppi og tvær niðri, hún er farin að leika sjálf týndur-fundinn og hvað ertu stór og svo er hún farin að segja pabbi :) Það er svosem ekki alveg víst en ég vil meina að þetta sé markvisst pabbi :) Svo verður hún alveg endalaust stolt og ánægð með sig þegar hún leikur listir sínar :)
Við erum búin að fara í fyrsta sundtímann á framhaldsnámskeiðinu og það gekk svona alveg ágætlega. Hún vaknaði samt kl 7 og náði ekkert ða leggja sig aftur en námskeiðið byrjar rétt fyrir tíu og var orðin frekar þreytt. Henni finnst bara ekkert skemmtilegt að kafa :( Eftir sundið fór hún á fyrsta íþróttamótið sitt og fylgdist áhugasöm með Iðunni frænku og Ara frænda berjast við hina ýmsu krakka en þegar þau svo áttu að berjast við hvort annað þá leist minni konu ekki á blikuna … vaknaði af værum blundi og alveg bara hágrét! En hún tók gleði sína á ný þegar þessi dugnaðarforkar fengu verðlaunin sín og leyfðu litlu frænkunni að skoða bikarana fjóra og medalíuna :)
Svo fór hún í aukavigtun á mánudag og í læknisskoðun í framhaldi af því þar sem hún heldur áfram að lækka í kúrfunni. Læknirinn skoðaði hana nú ekkert heldur horfði bara á hana og sagði að þetta væri nú ekki mikið áhyggjuefni … þetta væri mjög sprækt barn :) Þannig að við ætlum ekkert að hafa miklar áhyggjur í bili … ég hugsa nú samt aðeins of mikið um þetta. Svona með tilliti til þess þá erum við hætt við afvötnunina og hún fær bara brjóstið sitt eins og hún vill! Veitir ekki af því greyinu litla …

Já og undur og stórmerki! Daman er farin að spá í hvernig hún ætti að fara að því að skríða! Mjög gaman að fylgjast með því! Í dag fórum við svo á Selfoss til Darra og Tinnu … við fórum meðal annars í göngutúr sem Sögu fannst nú svona skítsæmilegt en henni var stórlega ofboðið þegar ég lét hana sitja í grasi og skoða blóm eða setti hana í sandkassann. Það var samt alveg ágætt að róla. Þaðan fórum við svo beint til ömmu og afa þar sem hún lék á alls oddi í brjáluðu hláturskasti meðal annars :) Var líka svo heppin að fá sætar kartöflur í matinn sem eru í miklu uppáhaldi :)

Afvötnun :)

20. maí, 2005

Við byrjuðum í nótt á því að venja Sögu af því að drekka á nóttunni þar sem ég er að fara að vinna eftir 10 daga og verð kannski ekki alveg að fúnkera í vinnunni ef ég þarf að vakna 3x frá miðnætti til átta. Hún var í fyrsta lagi ekki mjög ánægð með að pabbi hennar tæki hana upp og svona og hinn ósvífni faðir hennar bauð henni í fyrsta lagi stútkönnu sem er ekki vinsæl og í öðru lagi VATN! Vatn er yfirleitt mjög vinsælt og hún drakk það alveg en var frekar sár yfir þessari framkomu. Léleg þjónusta er ekki eitthvað sem hún sættir sig auðveldlega við! Vonandi á þetta eftir að ganga vel og fljótt!

Annars er hún öll að verða hressari … er sem betur fer hætt að hósta nema þegar það fýkur í hana og er bara með pínu hor. Það er ekkert rosalega vinsælt að láta snýta sér! Það er alveg jafn slæmt og að láta telja tennurnar! Hún er ennþá “bara” með fimm … en ég held nú samt að það sé fín tala fyrir tæplega sjö mánaða barn. Verst er hvað hún er dugleg að bíta mömmu sína með þeim :( Við erum sko að byrja í framhaldsnámskeiði í sundi á sunnnudaginn svo það er eins gott að hún sé orðin hress!

Hún er að verða rosalega dugleg að borða nema svona akkúrat þegar það er að koma tönn eða maður er stútfullur af kvefi. Hægðavandamálið er svo til horfið svo við erum byrjuð að auka fjölbreytnina. Núna borðar hún semsagt ýmist hafragraut eða ávaxtamauk í morgunmat, grænmetismauk eða brauð í hádeginu og svo hafragraut með sveskjum á kvöldin. Hún er búin að smakka allskonar nýtt sem henni líst vel t.d. gulrætur og sætar kartöflur … en svo er ekki allt gott eins og t.d. kjúklingur! Perur & melónur eru samt nr það vinsælasta svona fyrir utan hægðalyfið sem hún er alveg sjúk í. Hún verður þvílíkt æst þegar maður tekur upp flöksuna því þetta er náttúrulega sykurleðjuógeð :)
Við erum annars bara að taka því rólega og hafa það notalegt saman áður en ég fer að vinna. Úff, hnúturinn í maganum fer bara stækkandi ef eitthvað er!

Kvefuð lítil lús

16. maí, 2005

Saga Guðrún er komin með kvef og hálsbólgu með tilheyrandi hori, hósta og leiðindum. Hún er samt alveg mjög hress nema bara þegar er verið að reyna að snýta henni. Svo er hún búin að taka sig til og hósta þar til að hún ælir :( Hún er samt ótrúlega brött og alveg hitalaus. Það er nú líka bara alveg ótrúlega sætt hvað hún er rám og kvefuð! Óli er að jafna sig á sinni hálsbólgu og kvefi en ég er alveg sárlasin og er frekar fegin að Saga er ekki jafn veik og ég. Við fórum á Læknavaktina í gærkvöldi og læknirinn vildi meina að það væri brjóstamjólkinni að þakka að hún fær ekki hita með og er miklu brattari en ég! Það er auðvitað bara gott mál!
Það eru komnar upp 5 tennur og þær eru orðnar svo myndarlegar að það er hálf asnalegt að vera með skarð fyrir aðra framtönnina uppi :) En hún er aaaalveg að koma! Það er sko ekki slakað á hér í þessum málum frekar en öðrum.

Við erum lítið búin að brasa núna undanfarið. Búin að vera nokkuð dugleg við heimsóknirnar og svona en annars ekki neitt spennandi. Sandra passaði Sögu núna í vikunni og það gekk svona á heildina litið alveg hreint ágætlega … þó það hafi alveg skipst á skin og skúrir. Það er bara sjálfsagt að láta fólk vita þegar manni mislíkar hlutirnir og Saga Guðrún tekur það mjög alvarlega!

Nú er Óli búinn í prófum og næstu tvær vikurnar verða nokkurn veginn sumarfríið okkar áður en ég fer að vinna. Ég er ekki ennþá tilbúin til að tala um það!

Músarkrús

11. maí, 2005

Saga Guðrún heldur áfram að standa sig vel í sundinu og núna erum við búin með grunnnámskeiðið. Við förum svo á framhaldsnámskeið eftir hvítasunnuna svo það eru engin grið gefin! Svo er hún orðin svo dugleg að drekka hvar og hvenær sem er að hún lætur það ekkert stoppa sig að vera í sundi og drekkur bara samt. Eitthvað sem hefði ekki verið tekið í mál fyrir ekki svo löngu síðan. Núna bankar hún bara í brjóstin og borar svo nefinu ofan í þegar það má bjóða henni :) Í gær fór hún í fyrsta ferðalagið sitt … alla leið á Selfoss að heimsækja Darra Jökul vin sinn. Hún steinsvaf báðar leiðir og ekkert mál! Hún er sko aldeilis ákveðin og grenjaði alveg ferlega í hvert sinn sem Darri tók eitthvað dót af henni og lét sér ekki einu sinni detta í hug að taka það bara af honum í staðinn. Hún prufaði líka hoppurólu hjá honum og fannst það ekki lítið gaman.
Við fórum svo í Hitt Húsið í dag eins og venjulega og hún var eins og svefngengill þar til hún fékk sér að drekka og lék alveg á alls oddi eftir það. Hún alveg hoppaði og skríkti og brosti og hló. Það er ekki oft sem hún hagar sér svona annars staðar en heima hjá sér. Hún fann samt voðalega til með litla Benedikt Inga og kjökraði alltaf þegar hún horfði á hann gráta :) Ótrúlega dúlló :) Svo tætti hún bara í Tristan og tók snuðið af Elísabetu Láru svo að hún er ekkert alltaf í því að láta valta yfir sig :P
Það er nú líka nóg að gera í tanntökumálum hér á bæ. Þær eru 4 sem eru komnar upp og 3 sem ég er nokkuð viss um að séu að koma upp. Orðið vel hvítt tannholdið. Í dag fann ég svo eina sem er eiginlega komin alveg í gegn svo það er ekki verið að hangsa í þessum málum! Ekki skrýtið hvað hún er örg og lítil í sér inn á milli þessa dagana. Svo er hún ferlega snertifælin í kringum munninn eftir þessar athuganir mínar svo það gengur brösulega að vera viss.

6 mánaða skvís

4. maí, 2005

Þá er daman orðin 6 mánaða. Hvorki meira né minna! Hún varð 6 mánaða núna á seinasta föstudag. Tíminn flýgur!
Hún stóð sig eins og hetja í sundi á laugardaginn … var bara svo skelfilega þreytt að hún lét ekkert bjóða sér of mikið. Þau fengu dót sem þau þurftu að kafa til að fá og eftir þrjár dýfur vildi mín kona ekki sjá dótið. Hún var samt voðalega dugleg … lætur bara ekki bjóða sér hvað sem er! Við eigum bara einn tíma eftir en það verður samt ekki fyrr en um hvítasunnuhelgina þar sem við komumst ekki um þessa helgi. ´
Við fórum í 6 mánaða skoðun í gær. Hún er bara búin að þyngjast um 250 gr á mánuði … hrapaði alveg svolítið mikið í kúrfunni sinni en læknirinn og hjúkkan voru ekkret að stressa sig. Nú er hún orðin 6945 gr og tæpir 68 cm … löng og mjó ;) Hún var EKKI hrifin af lækninum sem skoðaði hana í þetta skipti, nöldraði allan tímann sem hann skoðaði hana og spilaði svo alveg út þegar hún fékk sprautuna :( Svo fórum við og keyptum handa henni kerru sem hún er ennþá aðeins of lítil í hana.
Svo allt í einu er hún búin að taka upp á að gráta sáran og neita að borða! Við þurfum samt að geta dælt vel í hana svo hún fari að þyngjast aftur … svo þarf hún líka að minnka brjóstið sitt núna á næstu vikum því ég fer að vinna um mánaðamótin :( Skelfileg tilhugsun … mér finnst hún hafa fæðst í gær. Reyndar þurfum við líklega ekki að sleppa úr nema einni gjöf sem er frábært! Vonandi gengur þetta vel :)