Aum lítil stelpa

Jæja ennþá eru bara komnar þrjár tennur en núna virðist þessi tanntaka vera farin að pirra hana og hún er búin að eiga frekar erfiða daga undanfarið. Hún er allt að rjúka upp grátandi og finnst voða gott að láta tannbursta sig og gómurinn er alveg svolítið bólginn í kringum framtennurnar. Svo það er aldrei að vita nema að tönnslunum eigi eftir að fjölda á næstunni.
Hún Saga Guðrún var alveg ofboðslega dugleg í sundi á laugardag. Grét bara ekki neitt og var alveg bara ótrúlega flott að kafa og skemmti sér hið besta. Á meðan við biðum svo eftir pabba hennar í sundlauginni þá varð smá slys en það var gott að við fjárfestum í kúkheldum sundbol. Svolítið skondið að barnið sem kúkar helst aldrei skuli allt í einu láta vaða í sundi! Annars standa þau mál svolítið betur … þau eru ekki komin í lag og hún þarf ennþá hjálp en það kostar ekki fljót af tárum og hávær öskur.
Við fórum í Hitt Húsið í gær eins og venjan er á þriðjudögum og aldrei þessu vant var Saga Guðrún bara lítið sem ekkert hrædd við hina krakkana, togaði dót af bæði Tinnu & Tristani og kippti sem ekkert upp við lætin í þeim. Ég var ekkert smá ánægð með hana!!! Annars er bara ekkert að frétta … við erum að hugsa um að kaupa göngugrind handa dömunni þrátt fyrir teppin því váááááá hvað henni virðist finnast það gaman þegar hún hefur fengið að prófa það! Og miðað við kraftinn í henni þá drífur hún alveg ábyggilega á teppinu! Ég vil helst að sjálfsögðu gera það í dag en það er aldrei að vita. Við ætlum að skreppa í heimsókn til Söndru & co áður en við förum í mat til ömmu og afa … kannski maður geti komið við og keypt eina göngugrind á leiðinni! Aldrei að vita!

Ein athugasemd við “Aum lítil stelpa”

  1. Haraldur skrifaði:

    Vona að þetta kúkastand fari að lagast. Ég yrði líka pirraður yfir þessari tanntöku, mér finnst nóg að fá nokkra jaxla!