Gaman að vera til :)
Hér er búið að vera nóg að gera undanfarið. Saga Guðrún er búin að fá fullt af frændum og frænkum í heimsókn og er ekkert smá ánægð með það. Henni finnst krakkarnir ótrúlega spennandi og sérlega fyndin - þau þurfa alveg bara ekkert að hafa fyrir því að fá hana til að hlæja
Á laugardaginn mætti Iðunn upp í Fjölnishús til að horfa á sundgarpinn og af því ég ætlaði að vera bara á myndavélinni fékk Iðunn að fara ofan í og Saga var alsæl með það. Hún verður bara duglegri og duglegri í sundinu jafnvel þó að afi Addi sé handviss um að það sé ekkert fiskagen í henni (frekar en öðum ;)) Svo tók hún sig til og hagaði sér bara einstaklega vel í mat hjá ömmu & afa á sunnudag, brosti og hló og vildi við alla tala þar til hana langaði að lúra. Svo í gær fékk hún nokkra vini sína í heimsókn og var bara frekar sátt. Hún er í sundi með Tinnu Mjöll & Darra Jökli og hittir Tinnu mjög oft en henni er ekkert alveg sama um þau tvo, þau vilja endilega toga í hana og svo eru þau pínu hávær og hún hefur ósjaldan farið að skæla undan Tinnu og meira að segja Darra líka. Daman var því alsæl með að hitta Stefaníu Dís sem var ósköp róleg og góð og það var alveg greinilegt hvernig klíkumyndunin verður í þessum hóp
En hún alveg brosti og hló og var alveg sama þó hún flakkaði á milli fanga og bara mjög sátt við lífið og tilveruna. Það er alveg að verða í minnihluta skiptin sem hún orgar og er ómöguleg við að hitta fólk. Í seinustu viku hló hún meira að segja fyrir alla í Hinu Húsinu mér til mikillar ánægju þar sem yfirleitt hefur bara verið grenjað þar.
Við erum að fara til læknis á fimmtudag út af kúkamálunum - en um leið og ég pantaði tímann þá fór hún að kúka eins og herforingi. Ég þori samt ekki að afpanta tímann og ætla ða mæta meðan hana af því að annars hættir hún ábyggilega um leið. En ég er nokkuð viss um að tilhugsunin um lækna hafi losandi áhrif á barnið
Annars er hún bara hörkudugleg núna, veltir sér í allar áttir og er eiginlega bara farin að sitja. Vantar herslumuninn þegar eitthvað spennandi er í boði
13. apríl 2005 kl.17:27
vá, hvað skvísan er orðin stór!Ég trúi ekki að ég hafi ekki komið í heimsókn meðan ég var í verknáminu- tíminn bara flaug frá mér (og ekki í fyrsta sinn!). Ég verð þá bara að kíkja á ykkur skvísur í sumar
Gangi ykkur vel.
Kveðjur frá Akureyri, Oddný