Dugnaðarstelpa
Við fórum í skoðun á mánudag og daman er orðin 6675gr og 65 cm og með 44 cm í höfuðummál. Hún er bara mjög fín þó að kúrfan hennar hafi aðeins lækkað. Hjúkkan var afar ánægð með hana og gaf henni 10 í einkunn fyrir allan þroska. Hún vildi líka meina að meltingakerfið myndi sennilega taka við sér þegar hún færi að fá fjölbreyttari fæðu og núna fær hún hægðalyf 1x á dag og alltaf perur eða sveskjur saman við grautinn til að mýkja hægðirnar og það virðist vera að ganga. Amk voru bara fjórir dagar á milli hjá henni núna og það þurfti ekkert að hjálpa henni. Það er alveg framför! Svo ráðlagði hún okkur líka nýja tegund af graut sem Sögu líkar mjög vel … með ávaxtamaukinu útí. Svo er hægðalyfið í sérstöku uppáhaldi enga ógeðsleg sykurleðja og er sko tekið inn með bestu lyst.
Amma Edda og stelpurnar komu í mat til okkar á mánudaginn og Saga byrjaði á því að taka smá syrpu. En eftir að hafa fengið sér að drekka og svona lék hún á alls oddi og tók góð hlátursköst fyrir þær en yfirgaf samkvæmið snemma til að fara að sofa. Hún vill samt yfirleitt ekki fara að sofa þegar það eru gestir því hún er viss um að hún sé að missa af einhverju
Í dag kom svo Iðunn frænka og var hjá okkur en hún er búin að vera lasin og orðin leið á að hanga heima. Saga Guðrún varð dálítið hissa þegar hún var allt í einu komin upp í rúm til hennar eldsnemma í morgun. En það stóð ekki lengi og hún var alsæl með að hafa hana hjá sér og Iðunn var ekkert smá dugleg að leika við hana og stússast með hana
Það var mikið hlegið og mikið fjör og alveg fullt af myndum komnar í albúmið
Svo fékk daman vatnsmelónu að smakka og það fannst henni ekki neitt lítið gott!!! Verst að hún nær að bíta alltof stóra bita af en það er allt í lagi að gefa henni smá