Loksins í sund :)

Héðan er allt gott að frétta :) Loksins komumst við aftur í sund en það eru þrjár vikur síðan við mættum seinast. Reyndar féll niður einn tími en Saga Guðrún var nú ekki búin að gleyma töktunum og stóð sig rosalega vel. Kennarinn sagði síðan við okkur eftir tímann að það borgaði sig að vera ákveðin við þessa dömu því hún hefði greinilega tendensa til að vilja stjórna ;) Ég veit ekkert hvað maðurinn er að tala um ;) Annars erum við bara búnar að brasa það sama við mæðgurnar, kíkja í Hitt Húsið, fara í göngutúra, heimsóknir og bara þetta venjulega. Svo er daman að fara í fimm mánaða skoðun á mánudaginn og sennilega förum við til barnalæknis fljótlega til að kíkja á þetta kúkavesen á henni…hún kvelst svo litla greyið jafnvel þó að hún sé að fá hægðalyf á hverjum degi. Hún er alveg dauðþreytt og athyglissjúk núna eftir sundið enda eiginlega ekkert búin að sofa. Hún vill sko hundrað og tuttugu prósent athygli og ekkert annað. Reyndar er hún farin að hafa alveg ofboðslega gaman að sitja í ömmustólnum sínum og fylgjast með í eldhúsinu og getur alveg setið góða stund þar. Annars er hún voðalega lítið fyrir það að dunda sér ein … en það kemur allt, ég finn mikinn mun á henni núna. Í kvöld gerðist líka svolítið stórmerkilegt í Sögulandi - Saga drottning drakk bara sitjandi upp í sófa í fyrsta skipti í áreiðanlega tæpa tvo mánuði. Ekkert smá ánægð með okkur mæðgur fyrir þær sakir í bili ;) Látum þetta gott heita í bili og skrifum aftur þegar daman er búin í skoðun…

Lokað er fyrir svör.