Kúridýr & kelirófa
26. apríl, 2005Gleðilegt sumar!!!
Daman fékk göngugrind í sumargjöf og skrapp í heimsókn á Álftanesið og skemmti sér vel á sumardaginn fyrsta. Hún er ekki alveg búin að fatta tryllitækið sem göngugrindin er en er að átta sig á því að hún á auðveldara með að tæta í henni. Búin að ná í músina á tölvunni minni einu sinni og eins í fjarstýringu og ekkert lítið ánægð með sig!
Óli kallinn er sárlasinn, búinn að vera lasinn núna svona upp og niður í á þriðju viku en við mæðgur erum stálslegnar. Núna er hann eiginlega bara fárveikur og búinn að vera síðan fyrir helgi og við búin að vera handviss um að Saga sé að verða veik. Það virðist þó ekki vera heldur er hún bara að uppgötva að það er svo notalega að kúra og knúsast í fólki. Leggur hausinn upp að manni og hefur það gott … bara sætust!
Við fórum tvær einar í sundið á laugardaginn og það gekk vonum framar. Saga Guðrún var heldur betur dugleg - stóð sig alveg eins og hetja. Kafaði alveg mjög oft og kvartaði bara aðeins í seinasta skiptið! Nú eigum við bara tvo tíma eftir og erum að stefna á að fara á framhaldsnámskeið.
Í gær fórum við svo og hittum nokkrar októbermömmur og það var rosalega gaman. Saga virðist vera svona nokkurn veginn hætt við að vera hræðslupúki þó að það komi stundir … eins og þegar það er tosað í hárið og svona sem henni ofbýður. Í dag í Hinu Húsinu tættu þær Tinna Mjöll bókina hennar Tinnu af hvor annarri í gríð og erg. Svo kom Þórdís í heimsókn núna í kvöld en hún hefur ekki komið síðan í byrjun janúar svo stelpan hafði aldeilis breyst, stækkað og þroskast síðan þá! Eftir smá byrjunarerfiðleika leist henni bara vel á Þórdísi og var alveg til í að kjafta svolítið við hana.
Svo er mikið ánægjuefni að hún er alveg komin yfir þetta vesen að vilja hvergi annars staðar drekka en heima hjá sér! Hún er búin að drekka núna úti um víðan völl bara, í margmenni og allt og ekkert mál. Í dag byrjaði hún nú líka bara að banka í brjóstið og reyna að drekka í gegnum bolinn svo ég er alveg í skýjunum með hana. Svo er kúkavesenið alveg á réttri leið líka þannig að það er tóm sæla í gangi núna svona fyrir utan veikindin á pabbalíusi. Greyið kallinn sem er að byrja í prófum eftir 4 daga
Við ætlum að vera sérlega duglegar að vera ekki heima og gefa honum frið svo ef einhver vill bóka okkur í heimsókn þá bara endilega