Strembnir dagar hjá dömunni
Sögulúsin er búin að vera dálítið lítil í sér undanfarna daga og hreint út sagt og búin að vera voðalega hvekkt. Það virðist samt ekkert sérstakt vera að hrjá hana heldur er hún bara eitthvað hálfþreytt eins og fleiri. Páskafríið verður notað til að kúra og slappa af - af því að það er svo margt annað búið að vera í gangi síðan hún fæddist
Hún var nú ekkert alltof þæg í pössuninni á laugardaginn en það gengur bara betur næst! Óttar Már frændi hennar kom líka í heimsókn og kyssti og Saga Guðrún var bara ekki alveg klár á því hvernig hún átti að taka þessum töffara. Annars er voðalítið búið að vera í gangi, borðuðum hjá ömmu & afa, fengum Ingunni & Tinnu í heimsókn. Það var nú dálítið fyndið að Saga Guðrún varð alveg logandi hrædd við Tinnu þar sem hún er búin að uppgötva að öskra. Í dag kom svo Beinta María sætasta í smá pössun og Sögu leist sko ekki á blikuna. Hún öskraði bara af öllum kröftum, roðnaði og blánaði og vildi ekki sjá þennan gest. Ástandið skánaði bara ekki að ráði fyrr en Halli uppáhald kom í heimsókn
Beintu fannst nú dálítið fyndið bara að það væri hægt að hræða þessa litlu vitlausu stelpu svona og reyndi alveg að taka svolítið í hana.
Annars er hún farin að borða mikið meira og vera rosalega dugleg og svo fær hún líka orðið vatn úr stútkönnu og það gengur bara voða vel. Nú er bara spurning um að fara að auka við úrvalið … hún sefur líka yfirleitt alveg ágætlega yfir nóttina er farin að vakna pínu oft aftur … held ég nú aðallega til að fá knús. Ég er nú aðeins að gefa eftir og hún fær að lúlla sér upp í stund og stund. Svo lúrum við saman fram undir hádegi þessa dagana þar sem við erum voða latar og þreyttar. Ég á bara tvo mánuði eftir af orlofinu og eiginlega orðin pínu skelfd. Hlakka svo til þegar haustið kemur aftur