Fyrsta læknisferðin og fleira

Saga Guðrún fór í sína fyrstu læknisheimsókn fyrir utan ungbarnaeftirlitið og eina heimsókn á bráðamóttökuna á þriðjudaginn. Að baki lá 10 daga kúkaleysi og ýmislegt búið að reyna. Eitthvað var mikið að gera hjá lækninum og við þurftum að bíða í 25 mínútur eftir lækninum. Á biðstofunni þá tók barnið til við að blána og roðna og rembast eins og hún fengi borgað fyrir það og læknisheimsóknin endaði á því að við skiptum á henni á meðan læknirinn hló og gaf okkur nokkur ráð! Þetta var nú frekar skondin heimsókn!
Annars erum við bara búnar að gera ekki neitt í vikunni. Erum að hugsa um að fara á októberbarnahitting á morgun ef allir verða hressir. Svo ætlum við að gerast djörf og skrópa í sundi því Iðunn er að fara að taka svarta beltispróf og við ætlum ekki að láta okkur vanta í stuðningsmannahópinn. Saga ætlar samt bara að vera heima og senda góðar hugsanir … hún verður í pössun hjá ömmu Eddu :) Hún er hætt í velti-verkfallinu og búin að velta sér í allar áttir undanfarna daga. Það er líka eiginlega komið á hreint að hún er mikið hrifnari af karlmönnum en okkur kvenfólkinu nema þá auðvitað mér og ömmu Mónu. Halli er í sérlegu uppáhaldi hjá henni … Síðan uppgötvaði hún tunguna nýlega og er heldur betur dugleg við að ulla á allt og alla án þess að skammast sín neitt. Svo sleikir hún allt sem að kjafti kemur … Hún er líka búin að uppgötva fuglana og hana langar svo að ná í Kjöl. Kili langar svo aftur á móti alveg ofsalega til að láta þessa litlu putta klóra sér en treystir þeim ekki alveg og þau eru alveg hreint kostuleg. Loksins er hún svo búin að skila 10 daga birgðunum af úrgangi, fór svo í bað í baðsætinu og skemmti sér ljómandi vel - alveg sama þó maður skvetti yfir andlitið og allt. Svo fékk hún nudd, sopann sinn og graut og er bara alsæl að spjalla við afa sinn í símanum akkúrat núna!

Lokað er fyrir svör.