Allt fram streymir endalaust
Saga Guðrún heldur bara áfram að stækka og þroskast alveg á fullu … hún verður bara fullorðnari með hverjum deginum! Hún er farin að blaðra út í eitt (hvert ætli hún sæki það eiginlega?) Seinasta vikan leið bara í rólegheitunum … ég var lasin og við vorum bara heima í letilífi. Á föstudaginn fórum við svo í heimsókn til afa Kjartans & svo í idol-partý til Ingunnar, Gumma & Tinnu. Stelpurnar tóku því bara með mikilli ró þó þær hafi nú með aðstoð feðra sinna tekið nokkur létt spor þegar spennan var sem hæst. Svo steinsváfu þær af sér úrslitin
Sama var ekki hægt að segja um okkur hin sem vorum æsispennt! Svo í gær var sund og Saga Guðrún var ekki neitt lítið dugleg! Hún hló og sprellaði, talaði við kennarann og fullt af fólki. Hún kvartaði svolítið þegar hún var að kafa en lét sig samt alveg hafa það … meira segja var hún látin stinga sér lengst ofan í - alveg á hvolfi og skældi bara smá
Í dag ætlar hún svo að fara í pössun til ömmu & afa því ég ætla að fara að heimsækja músluna hana Beintu upp á spítala! Það er ekki alveg sniðugasti staðurinn til að fara með Sögu á í bili en hún verður ábyggilega bara sæl og ánægð að vera hjá ömmu & afa …