Nóg að gera eins og alltaf
Þá erum við búin að fara í þriðja sundtímann og daman stóð sig alveg eins og hetja! Hún var ofsalega dugleg og kafaði meira að segja án mótmæla nokkrum sinnum. Við fengum samt alveg líka aðeins að heyra það … en hún var samt rosa dugleg! Eftir sundið fórum við í afmæli til Ara en hann á 9 ára afmæli í dag. María frænka á líka afmæli og við vorum í afmæli hjá henni núna í kvöld og svo á Garpur sæti afmæli líka … en ég gleymdi því samt
Í dag fórum við og keyptum handa henni matarstól þar sem hún verður alveg brjáluð á matartímum því henni finnst hún vera að missa svo af. Hún situr nú ekki nógu vel í honum til að geta borðað þarna strax en hún getur setið þarna á meðan við borðum og verið með
Hún vaknar meira að segja um leið og við ætlum að borða og það bregst ekki! Ég veit ekki hvort maður eigi að þora að segja það en ég er ekki frá því að mannafælnin sé að skána í rófunni … En henni var nú samt stórlega misboðið þegar að ég bauð henni að drekka í Kópavoginum í kvöld! En hún fer að vera svo dugleg að borða að það má bjarga svoleiðis aðstæðum með mauki … ef út í það er farið … Henni finnst sveskjumauk alveg ofsalega gott nefnilega. Svo er hún bara byrjuð að vera hið mesta matargat og lætur heyra í sér ef grauturinn er of lengi að berast ofan í hana! Enda er hún að stækka og fitna eins og hún fái borgað fyrir það og hakan og kinnarnar farnar að vera í betra samræmi við restina af henni