Allt á fullu allsstaðar

Hér í nýju íbúðinni er allt í fínasta standi. Við erum svo gott sem búin að koma okkur fyrir, nema að það á eftir að mála herbergið fyrir prinsessuna og setja það í stand en það er á dagskrá næstu daga. Saga Guðrún er alveg duglegust af öllum þessa dagana … kjaftar út í eitt og er farin að myndast við að sitja :) Hún er líka farin að vera miklu duglegri við að vera sjálfri sér næg og í gær gleymdi ég henni næstum því - hún var svo góð á gólfinu að leika. Yfirleitt er ekki hægt að leggja hana frá sér nema í svona 5 - 10 mín í mesta lagi :P Við mæðgurnar erum búnar að vera á miklu flakki og hún er bara ánægð með það. Hún vill ennþá ekki drekka nema á nokkrum útvöldum stöðum og helst að sjálfsögðu heima hjá sér en mér finnst hún samt aðeins vera farin að lagast með þetta óöryggi. Vonandi er þetta bara tímabil sem er að ganga yfir. Í dag ætlum við að fara aðeins á flandur með Ingunni & Tinnu Mjöll og svo ætla þær að koma í heimsókn til okkar :) Munur að búa í höll þar sem er hægt að bjóða fólki inn :) Svo er sund á laugardaginn og hittingur á sunnudag og svo verður ráðist í prinsessu herbergið :) Alltaf nóg að gera hér…
Má ég minna á gestabókina og commentin … bæði hér og á myndunum ? :)

Ein athugasemd við “Allt á fullu allsstaðar”

  1. Haraldur skrifaði:

    Þú mátt minna á gestabókina og commentin. Hér með hefuru leyfi mitt.