Páskaleti
27. mars, 2005Litla fjölskyldan er sko aldeilis búin að hafa það gott um páskana. Við erum búin að vera alveg á fullu í félagslífinu
Búin að fara í þrjú matarboð og eina skírn og fjórða matarboðið á morgun! Saga Guðrún er sko alveg ótrúleg! Hún var ekki allskostar sátt með matarboðið á föstudaginn langa og orgaði ansi vel til að byrja með. Svo eftir pínu lúr tók hún sig saman í andlitinu og var hin mesta selsskapsdama undir lokin. Á laugardeginum grenjaði hún úr sér augun hjá ömmu & afa á meðan við fórum í kirkjuna í skírn og lék svo á alls oddi í veislunni sjálfri. Í dag var hún svo alveg í miklu stuði í báðum matarboðunum sem við fórum. Í kvöld fórum við til langömmu Drífu og þar hitti hún Kolbrúnu Örnu orkubolta sem var aldeilis til í að hoppa og skoppa fyrir litlu frænkuna sem alveg stóð á öndinni af hlátri. Hún gætti þess samt vandlega að sýna þeim líka að hún kunni að væla
Eftir að hafa borðað svínabóg í hádegismat og kalkún í kvöldmatinn vorum við skyndilega uppfull af orku og tókum til við að taka til og laga íbúðina betur. Setja upp myndir og allskonar skemmtileg heit! Eins gott að geta sagst hafa komið einhverju í verk í páskafríinu!
Það er alveg fullt af nýjum páska myndum
Endilega commenta á þær og eins senda okkur kveðju!