Flutt!!
Jæja þá erum við að flytja í dag! Saga Guðrún finnur það greinilega á sér að hér stendur eitthvað til og er sko ekki til í að vera meðfærileg í augnablikinu! Hún fæst varla til að sofa neitt og vill hafa manninn á sér bara
Litla drottningin
Tölvan verður sjálfsagt það seinasta sem pakkað verður niður og það líklega bara rétt áður en við Saga skoppum út úr dyrunum til ömmu & afa þar sem hún ætlar að vera í pössun á meðan við hin reynum að flytja.
Við fáum svo ekki netið fyrr en um miðja næstu viku …. svo gallharðir aðdáendur verða að vera án frétta og mynda í viku eða svo