Lítill tannálfur

Haldiði ekki að hún Saga Guðrún sé bara komin með tönn! Ég uppgötvaði hana í dag en var ekki alveg með á tæru hvort hún væri komin í gegn en viti menn, það heyrðist bara greinilega þegar ég prófaði að banka laust í hana :) Tönninn merkilega er í neðri góma vinstra megin fyrir áhugasama aðdáendur. Pabbi hennar varð ekki lítið hissa og spurði mig meira að segja hvort ég væri viss umm að þetta væri tönn :) Hún er ekkert smá fljót þetta skott…14 1/2 vikna að fá fyrstu tönnina sína :) Hér eru “smá” stoltir foreldrar í dag :) :) :)

3 athugasemdir við “Lítill tannálfur”

  1. Steinunn frænka skrifaði:

    Til hamingju með tönnina :) Bara flottust. Æðisleg mynd!!

    Knús og klem frá öllum hér
    Steina og co.

  2. Maja skrifaði:

    Til hamingju með fyrstu tönnina litli tannálfur :) þú ert sætust

  3. Sandra Ósk skrifaði:

    váá! flottasta stelpan :)