Skjalasafn fyrir febrúar, 2005

Mætt aftur :)

25. febrúar, 2005

Jæja þá er netið loksins komið í gang aftur og kominn vikuskammtur af nýjum myndum :) Saga Guðrún tók flutningunum með hinu mesta jafnaðargeði og hefur bara verið pínulítið óróleg síðan. Hún ákvað að taka þetta með trompi og hefur sofið eins og engill allar nætur í sínu rúmi nema fyrstu nóttina en þá fékk hún að koma upp í. Daman er annars alveg að verða sköllótt :( Hún er með risa skallablett á hnakkanum, einn á hvorri hlið og ofan á hausnum eru bara strý eftir. Hún er hinsvegar með sítt að aftan og fínasta kraga :) Við fórum í ungbarnasund á laugardaginn og í byrjun hló hún svo að það ískraði í henni en gamanið tók heldur að kárna þegar það var komið að því að kafa. Allt annað fannst henni bara mjög skemmtilegt! Við erum búnar að kíkja í Hitt Húsið, fara á októberbarnahitting, fara í tvö afmæli og nokkrar heimsóknir. Vorum svo duglegar hérna í gær að við fórum í strætó ferð til Ingunnar & Tinnu og löbbuðum svo þaðan til Maju frænku þar sem Óli kom og sótti okkur :) Við erum svo að spá í að vera höööörkuduglegar á næstunni við að fara í göngutúra þó að það sé nú ekki mjög spennandi göngutúraumhverfi hér í hverfinu :) Ég er ábyggilega að gleyma einverju ferlega merkilegu en það fær þá bara að fljóta með næst :)

Flutt!!

16. febrúar, 2005

Jæja þá erum við að flytja í dag! Saga Guðrún finnur það greinilega á sér að hér stendur eitthvað til og er sko ekki til í að vera meðfærileg í augnablikinu! Hún fæst varla til að sofa neitt og vill hafa manninn á sér bara :) Litla drottningin :) Tölvan verður sjálfsagt það seinasta sem pakkað verður niður og það líklega bara rétt áður en við Saga skoppum út úr dyrunum til ömmu & afa þar sem hún ætlar að vera í pössun á meðan við hin reynum að flytja.
Við fáum svo ekki netið fyrr en um miðja næstu viku …. svo gallharðir aðdáendur verða að vera án frétta og mynda í viku eða svo :)

Tönn á tönn ofan !

13. febrúar, 2005

Hér á bænum er ekki hangsað við hlutina! Þegar við vöknuðum í morgun var tönnin bara ein í neðri góm og daman sæl með að fá smá nudd á góminn. Svo fórum við Saga í mömmuhitting hjá Guðrúnu & Stefaníu Dís og þar var hún að kjafta við mig og viti menn … var ekki bara tönnin góða komin með félaga sér við hlið! Það á greinilega ekki að hangsa við tanntökuna frekar en annað og hrikalega sætt að sjá glampa á þær þegar maður hlær eða grætur!

1.sundtími

12. febrúar, 2005

Þá erum við búin að fara í fyrsta sundtímann okkar og það gekk bara mjög vel :) Saga var nú ekkert alltof ánægð með þetta samt og lét aðeins í sér heyra. Hún var voða dugleg að standa í lófanum á pabba sínum og á bringunni og fannst það ekkert voðalega slæmt að láta skvetta yfir sig. Í næsta tíma kafar hún svo líklega :) Ég var pínu tense með hana í vatninu en þetta kemur! Hún sofnaði svo um leið og hún var komin í útigallann og í stólinn en vaknaði á leiðinni inn úr bílnum og vildi sko borða alveg um leið! Hún er náttúrulega svo rosalega mikil drottning að það mátti ekki bjóða henni upp á að drekka í sundinu … maður vill borða heima og hvergi annars staðar! Við erum strax farin að hlakka til næsta tíma! Svo í kvöld förum við í Kópavoginn því afi Kjartan á afmæli :) Vonandi að daman verði vöknuð og hress!

Lítill tannálfur

8. febrúar, 2005

Haldiði ekki að hún Saga Guðrún sé bara komin með tönn! Ég uppgötvaði hana í dag en var ekki alveg með á tæru hvort hún væri komin í gegn en viti menn, það heyrðist bara greinilega þegar ég prófaði að banka laust í hana :) Tönninn merkilega er í neðri góma vinstra megin fyrir áhugasama aðdáendur. Pabbi hennar varð ekki lítið hissa og spurði mig meira að segja hvort ég væri viss umm að þetta væri tönn :) Hún er ekkert smá fljót þetta skott…14 1/2 vikna að fá fyrstu tönnina sína :) Hér eru “smá” stoltir foreldrar í dag :) :) :)

10 dagar í flutninga

6. febrúar, 2005

Þá erum bara tíu dagar eftir hérna í Eskihlíðinni! Maður ætti kannski að hugsa sér til hreyfings og fara að pakka og svona - en við erum alveg pollróleg yfir þessu öllu.
Við erum hætt við aftur að gefa Sögu Guðrúnu graut í bili þar sem henni virtist bara líða illa af honum. Henni líður ekkert illa af því að vera bara á brjóstinu - er að þyngjast vel og sofa vel og því ekkert því til fyrirstöðu að láta það duga í bili.
Ég held að það sé ekki hægt að segja annað en að rófan litla sé með smá skap. Mannafælustælarnir í henni eru ekkert á undanhaldi - heldur fer það bara eftir því hvernig hún er stemmd hvernig hún tekur fólki. Það nýjasta hjá henni er svo það að í öðrum húsum er ekkert á dagskránni að drekka - það kostar grát og gnístran tanna. Hún til dæmis var alveg vitlaus í gær á því að vera úti og það liðu næstum fimm tímar þar til ég fékk hana til að drekka. Það tóks á endanum með því að breiða sæng upp fyrir haus og þrjóskast við að halda henni á brjóstinu. Þetta er alveg voðalega erfitt ástand :( Hún gerði þetta líka á föstudaginn að góla bara þegar henni var boðið að drekka og var alveg snar. Svo í öllum hamaganginum þá svelgist henni á því hún byrjar alltaf aðeins að drekka og æi… þetta er bara ekkert skemmtilegir stælar í henni :( Bara spurning um hvort að hún verði bara ekki að vera orðin veeeel svöng. Við vorum svona að spá í að fara á svona mömmuhitting á morgun en það verður að koma bara í ljós hvort við höfum taugar í það… amk erum við bara heima í dag að safna kröftum eftir þetta stríð í gær. Þetta tekur soldið á taugarnar hjá okkur báðum! Ég er alltaf að bæta inn myndum við og við og minni enn og aftur á gestabókina og það allt =)

3ja mánaða skoðun

1. febrúar, 2005

Við fórum í 3ja mánaða skoðunina í morgun og gekk það bara mjög vel. Hún er orðin 5855 gr og 62.5 cm. Að sjálfsögðu rosalega fín stelpa :) Hún tók varla neitt eftir sprautunni - kjökraði aðeins en var fljót að gleyma því þegar hún sá okkur. Læknirinn mælti með því að við færum að gefa henni graut … því hún má alveg bæta meira utan á sig - hún talaði um að hún hefði átt að vera búin að tvöfalda fæðingarþyngdina núna og það vantar ca 500 gr upp á það. Við vorum bara sátt við það og hún fékk graut í fyrsta sinn í kvöld.
Henni fannst þetta nú bara alveg hreint ágætt - varð svolítið hugsi á svipinn en brosti síðan út að eyrum og skellihló. Smjattaði síðan í langan tíma á eftir á grautnum og bara sæl og ánægð! Kannski bara lítið matargat hér á ferðinni - virðist stefna í það þar sem henni finnst sveskjusafi æði og alsæl með grautinn sinn :)