3ja mánaða skvísa
29. janúar, 2005Tímnn flýgur því skvísan er orðin þriggja mánaða … Hún er voðalega hress þessa dagana, virðist ekkert vera að angra hana og hún er eiginlega hætt við að gerast mannafæla nema hún eigi eftir að líkjast mér eitthvað í þeim efnum. Við skulum nú vona ekki en ég get nú ekki að því gert að mér finnst svolítið fyndið þegar hún tekur þessi köst sín … en það er auðvitað vegna þess að ég er alltaf vinsæl á þessum bæ
Við erum aðeins byrjuð að reyna aftur með pelann en það er ekki alveg að ganga … henni virðist hreint og beint bjóða við svona silicon túttum - sama hvort þær eru á snuði eða pela. Það er á dagskránni að kaupa aðra tegund og þá með latex túttu og vonandi gengur það betur!
Við fórum á fyrrverandi bumbuhitting í gær og það var rosagaman. Svo fórum við í vikulega idol heimsókn og til Steinunnar í þetta skipti. Saga Guðrún svaf það að mestu af sér en brosti út að eyrum þegar hún vaknaði og hlustaði á Heiðu syngja … greinilega með ágætis tónlistargáfu barnið
Svo er það 3ja mánaða skoðun á þriðjudaginn með sprautu
Vonandi kippir hún sér ekkert upp við það og hún er sjálfsagt búin að þyngjast eins og herforingi a.m.k. miðað við nýtilkomnar fellingar og þannig …
Ég vildi bara skrifa smá línu svona í tilefni dagsins og þakka fyrir viðbrögðin við hvatningunni um að láta vita af sér hér á síðunni …