Nóg að gera
29. desember, 2004Það er aldeilis nóg að gera hjá okkur! Við erum búin að fara í þrjú jólaboð og eitt afmæli! Það er svona þegar maður er jafnvinsæll og Saga - maður er alveg hreint ómissandi í öllum aðstæðum - jafnvel þó maður sofi bara!
Við fórum líka í gær í heimsókn til langafa Gettu & Sigrúnar og þeim leist voða vel á dömuna - að sjálfsögðu. Það eru allir jafnsammála um að Saga Guðrún sé voðalega lík pabba sínum og systrum hans. Það er nú aldeilis flott enda eru þau öll svo sæt! Ég sé nú samt ennþá svip af afa Adda á henni en mest þegar hún er sofandi
Síðan er það að eftir því sem tíminn líður þá verður hún líka meira og meira hún sjálf!
Hún fékk semsagt geislaspilara í jólagjöf frá okkur til að geta hlustað á tónlist fyrir svefninn. Við settum Beatles For Babies sem eru Bítlalög spiluð af spiladósum og svona í áðan þegar hún var búin að drekka og þvílíkt bros á barninu - sólskinbros og svo kom bara sæluandvarp. Við spiluðum þetta svolítið fyrir hana meðan hún var ennþá í bumbunni svo það er aldrei að vita nema að hún hafi kannast við tónana! Hún fékk líka röndótt náttföt í jólagjöf frá langömmu Boggu og er alveg bara hrikalega sæt í þeim
Litli gleðipinninn okkar!