Skjalasafn fyrir nóvember, 2004

Fimm daga gömul

3. nóvember, 2004

Þá er daman orðin fimm daga og ennþá ferlega dugleg við að gera allt sem við er að búast af fimm daga gömlu barni! Sefur út í eitt fram að miðnætti og heldur að næstu sex til sjö tímarnir séu stöðugur matartími :) Hún er búin að fá fullt af heimsóknum og er sko ekkert að kippa sér upp við það. Hún lætur þó óspart í sér heyra ef hún vill komast í mömmu-fang enda langmest að græða þar! Hún byrjaði aðeins að kvarta áðan í fanginu á Brynjari en þegar hún fór svo í fangið á Iðunni ætlaði allt að verða vitlaust. Hún hafði sko hugsað sér að komast í fangið á mömmu sinni til að fá sér að borða. Svei okkur að fatta það ekki strax :)
(meira …)

Fyrstu dagarnir

1. nóvember, 2004

Við viljum bara byrja á því að þakka fyrir allar kveðjurnar! Ekkert smá gaman að heyra í ykkur öllum :)
Hér gengur allt eins og í sögu … hahaha :) Daman gerir allt eins og hún á að gera og heldur eiginlega að hún sé kúkavél. Ég gerði dauðaleit í nótt í herberginu hennar að afgangssvömpunum sem ég var handviss um að væru þarna einhvers staðar og harðneitaði að trúa því að svona svampapakki væri næstum því búinn á einum sólarhring. Daman gerði sér líka lítið fyrir og kláraði fyrsta bleyjupakkann fljótlega í dag.

(meira …)