Mánaðargömul
29. nóvember, 2004Úff hvað tíminn líður hratt! Október var lengsti mánuður sem ég hef nokkurn tímann lifað en nóvember bara hvarf! Þetta er alveg ótrúlegt! Time is fun when you’re having flies - eins og Sandra orðaði það
Hjúkkan bara gleymdi okkur í dag
Ég hringdi niður á heilsugæslu um 16:30 og þá hafði Saga bara ekki átt neinn tíma hjá þeim og hún hringir í mig aftur á miðvikudag. Ég var pínufúl - búin að lenda tvisvar í veseni hjá þeim á stuttum tíma. En það skiptir nú ekki öllu … hún verður þá bara ennþá þyngri þegar hún kemur loksins
Í gær fórum við í afmæli til langömmu Rönku. Þetta var fjórða afmælið sem Saga fór í á fjórum vikum! Þetta var nákvæmlega ástæðan fyrir því að mér var svona mikið í mun um að stelpan kæmi í heiminn fyrir mánaðamót því það er sko meira en nóg að gera í nóvember í fjölskyldunni.
Hún er öll að koma til í maganum. Ég læt bara engan lauk ofan í mig ( nema smá hvítlauk einstaka sinnum - hann virðist ekki hafa áhrif ) og hún er nokkuð sátt. Hún fær nokkrar pílur á hverju kvöldi en ekkert svakalegt … þeim lýkur yfirleitt með rokna ropa eða prumpi sem er bara gott mál. Vonum að laukurinn hafi bara verið málið. Annars er daman orðin svona ferlega brosmild þegar mamma hennar er annars vegar, fljót að brosa til hennar enda eins gott að hafa mjólkurbúið sér velviljað! Eina vandamálið að ég varð stundum einum of hrifin og greyið mitt litla hrökk í kút þegar ég var að dásama þetta sæta bros hennar! Stefnan er sett á það að vera komin með brostæknina á fullt sem fyrst til að geta tekið á móti Steinu frænku með risastóru brosi eftir eina og hálfa viku