Komnar heim :)
31. október, 2004
Þá erum við mæðgurnar komnar heim af spítalanum og þvílík sæla! Hún er alveg ótrúlega flott í vöggunni sinni og steinsefur þó fiðraði hluti fjölskyldunnar sé á útopnu. Þar hafði ég rétt fyrir mér … hún hrökk í kút við minnsta hljóð upp á deild en þekkir greinilega óhljóðin hér á heimilinu.
Það er allt búið að ganga ótrúlega vel. Hún kom okkur svolítið á óvart og það uppgötvaðist ekki fyrr en bara um leið og hún skaust í heiminn að hún var í framhöfuðstöðu. Þess vegna urðum við að fara á sængurkvennadeildina í smástund en þær hleyptu mér heim í morgun
Við mætum svo í útskrift á miðvikudaginn!
Ef þið spyrjið mig þá er hún alveg eins og afi Addi … ég get ekki séð mikinn svip af pabba hennar hjá henni. A.m.k. ekki ennþá en aldrei að vita hvað gerist. Daman lætur svo sannarlega heyra vel í sér og vill bara helst fá að sofa í mömmu-fangi. Mamman er svo meyr að hún leyfði henni það í nótt og takk fyrir, hún Saga Guðrún lét sko ekki bjóða sér það að liggja við hliðina á mömmu sinni, í fangi ætlaði hún að vera
Hún hefur verið rosa dugleg að drekka og það er bara eintóm hamingja. Við mæðgurnar ætlum að skríða upp í rúm að kúra og hvíla okkur áður en ljósmóðirin kemur í heimsókn til okkar.
Kveðja
Soffía
